E. Ólafsson ehf.
Þitt fyrirtæki í ferskum, frystum, söltuðum og niðursoðnum sjávarafurðum.
Í síbreytilegum heimi viðskiptanna eru stöðugleiki og traust verðmætir
eiginleikar. Þessir eiginleikar eru leiðarljós E. Ólafssonar ehf.
E. Ólafsson ehf leitast við að vera meira en viðskiptafyrirtæki. Við
erum fyrirtæki sem uppfyllir þarfir hinna mismunandi viðskiptaaðila,
framleiðenda jafnt sem kaupenda.
Fyrirtækið var stofnað árið 1989 af Eyþóri Ólafssyni sem hefur yfir
25 ára reynslu í viðskiptum tengdum sjávarafurðum. Starfsmenn okkar
eiga frábært samstarf við kaupendur og framleiðendur víðsvegar að úr
heiminum og eru ávallt opnir fyrir nýjum möguleikum og viðskiptatækifærum.